
Jóhann R. Kristjánsson
Aðfangadagur hefur að geyma eitt afmælisbarn:
Jóhann R. Kristjánsson tónlistarmaður frá Egilsstöðum er 53 ára, hann er ekki þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar en plata hans, Er eitthvað að? frá 1982 hefur öðlast cult-sess meðal poppfræðinga. Á sínum tíma hlaut platan afhroð gagnrýnenda en hefur nú fengið uppreist æru, og er í dag eftirsóttur safngripur.














































