Afmælisbörn 23. maí 2015

Kári Þormar

Kári Þormar

Fjögur afmælisbörn koma við sögu í dag:

Tómas Magnús Tómasson (Tommi Tomm) bassaleikarinn góðkunni er sextíu og eins árs. Tommi er auðvitað þekktastur fyrir Stuðmannaframlag sitt en hann hefur plokkað bassann í mun fleiri sveitum, s.s. Amor, Arfa, Þursaflokknum, Fónum, Gæðablóðum, Change, Mods, Bítladrengjunum blíðu, Rifsberju, Snillingunum og Sirkus Homma Homm. Tómas hefur einnig unnið nokkuð við upptökur.

Kári Þormar (Kárason) kórstjórnandi og organisti er fjörutíu og sjö ára gamall í dag. Kári sem í dag er stjórnandi Dómkórsins og organisti Dómkirkjunnar, hefur komið víða við á sínum ferli og starfaði til að mynda við Áskirkju, Fríkirkjuna og víðar, sem organisti og stjórnandi. Kári nam orgel- og píanóleik hér heima en fór til framhaldsnáms í Þýskalandi.

Árni Vilhjálmsson söngvari FM Belfast er aukinheldur þrjátíu og fimm ára gamall í dag. Árni hefur auk þess að vera í FM Belfast, verið í rappsveitinni Motherfuckers in the house.

Einnig hefði Margrét Sighvatsdóttir söngkona og tónskáld átt afmæli á þessum degi en hún lést 2012. Margrét (f. 1930) bjó lengstum í Grindavík en var upphaflega af Rangárvöllunum, hún nam söng hjá Sigurði Demetz, Maríu Markan, Guðrúnu Á. Símonar og fleirum en hún lærði einnig á píanó auk þess að spila á fleiri hljóðfæri. Börn hennar gáfu út plötuna Lögin hennar mömmu í tilefni af áttræðis afmæli hennar 2010.