
Olga Guðrún Árnadóttir
Þrjú afmælisbörn í tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:
Vernharður Linnet djassfræðingur með meiru er sjötíu og eins árs. Vernharður er líklega þekktasti djassáhugamaður landsins en hann hefur komið að djasstónlistinni frá ýmsum hliðum, starfrækt og stýrt tímariti um djass (Tónlistartímaritið TT og Jazzmál), haldið úti útvarpsþáttum, verið gagnrýnandi á Morgunblaðinu og verið virkur í félagsmálum djassista, verið í stjórn Jazzhátíðar Reykjavíkur, Jazzvakningu og RúRek. Vernharður hefur verið heiðraður fyrir störf sín í þágu djass á Íslandi, hlotið heiðursviðurkenningu Jazzhátíðar Reykjavíkur og Bjarkarlaufið, viðurkenningu Samtóns.
Olga Guðrún Árnadóttir er sextíu og tveggja ára. Hún hafði séð um barnatíma í Ríkisútvarpinu kornung þegar Ólafur Haukur Símonarson fékk hana til að syngja lög inn á barnaplötuna Eniga meniga. Eniga meniga er löngu orðin sígild í hjörtum Íslendinga, enda þekkja allir Ryksugulagið, Ég heyri svo vel, Það vantar spýtur og auðvitað titillagið Eniga meniga, en hún gaf einnig út plöturnar Babbidí bú og Kvöldfréttir.
Ingibjörg Stefánsdóttir söngkona er fjörutíu og þriggja ára. Ingibjörg fór sem fulltrúi Íslands í lokakeppni Eurovision 1993 þegar hún söng lagið Þá veistu svarið, áður hafði hún vakið nokkra athygli með hljómsveitunum Pís of keik og Sirkus Babalú, og gefið út efni með þeim.