
Karlakór Hornafjarðar
Karlakór Hornafjarðar starfaði á þriggja áratuga tímabili um miðja síðustu öld, mest fyrir tilstuðlan eins manns.
Karlakór Hornafjarðar var stofnaður 1937 af Bjarna Bjarnasyni (1897-1982) frá Brekkubæ í Nesjum en hann var stjórnandi kórsins allt frá upphafi til enda, eða í þrjátíu ár.
Auk þess að vera mikilvægur hluti af menningarlífi Austur-Skaftfellinga gaf kórinn út heftið Fimmtán sönglög en í því var að finna lög eftir Skarphéðin Þorkelsson héraðslækni á Höfn í Hornafirði, í karlakóraútsetningum.
Þegar Karlakór Hornafjarðar hætti störfum 1967 liðu nokkur ár þar til nýr kór var stofnaður af grunni hans, karlakórinn Jökull sem enn er stundum kallaður Karlakór Hornafjarðar.














































