Afmælisbörn 12. desember 2015

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Glatkistan hefur á skrá sinni í dag tvö tónlistartengd afmælisbörn:

Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór á afmæli og er fjörutíu og átta ára, hann nam söng hér heima og á Ítalíu, hefur starfað m.a. í Íslensku óperunni, með Frostrósum og Mótettukórnum, auk þess að syngja á plötum annarra tónlistarmanna. Jóhann Friðgeir hefur gefið út fjórar sólóplötur.

Orri Harðarson trúbador er fjörutíu og þriggja ára, hann vakti fyrst athygli í Músíktilraunum með hljómsveitinni Óþekktum andlitum frá Akranesi og síðan með Tregablandinni lífsgleði og öðrum Skagasveitum, hann hefur spilað á plötum annarra auk þess að annast upptökustjórn og útsetningar, mest hefur hann unnið einn, enda hefur hann gefið út nokkrar sólóplötur.