![Plató [1]](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2016/05/platc3b3-1.jpg?w=300&h=219)
Plató
Hljómsveitin Plató var ein þeirra bítlasveita sem spratt fram á sjónarsviðið um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Sveitin kom fram sumarið 1964 og hafði á að skipa ungum meðlimum eins og títt var á þeim tíma en þeir voru Kristinn S. Jónsson gítarleikari, Einar Hólm trommuleikari [og söngvari?], Sigurgeir A. Jónsson bassaleikari og Kristinn Sigmarsson gítarleikari.
Sveitin mun hafa starfað í að minnsta kosti tvö ár en hugsanlega lengur. Allar upplýsingar þ.a.l. eru vel þegnar.














































