Afmælisbörn 10. október 2016

Hilmar Jensson

Hilmar Jensson

Aðeins eitt tónlistartengt afmælisbarn kemur við sögu Glatkistunnar í dag:

Hilmar Jensson gítarleikari á stórafmæli en hann er fimmtugur á þessum degi. Hilmar sem hefur síðustu árin fyrst og fremst starfað í djassgeiranum hefur gefið út nokkrar sólóplötur og með hljómsveitunum Tyft og Mógil en einnig hefur hann gefið út plötur í samstarfi við Skúla Sverrisson, Jóel Pálsson og fleiri. Áður hafði Hilmar starfað í hljómsveitum eins og Morse, The Spiders og Stjórninni en hann var einmitt einn af stofnmeðlimum síðast töldu sveitarinnar.