
Berkir
Hljómsveitin Berkir frá Bolungarvík starfaði í um ár á tímum bítla á síðari hluta sjöunda áratugarins.
Í fyrstu var um að ræða tríó sem þeir Gylfi Ægisson gítarleikari, Jakob Þorsteinsson píanó- og orgelleikari og ónafngreindur trommuleikari skipuðu. Trymbillinn hætti fljótlega og í hans stað komu Ingibergur Þór Kristinsson trommuleikari (bróðir Eggerts fyrsta trommuleikara Hljóma) og Friðrik Gíslason bassaleikari og söngvari.
Einhverjar mannabreytingar áttu sér stað í sveitinni og þannig eru Friðrik Sæbjörnsson, Sigurður Benjamínsson og Gunnar Hallsson sagðir hafa verið í henni á einhverjum tímapunkti.
Berkir störfuðu líklega fram á árið 1968.














































