Hljómsveitin Væringjar starfaði á Kirkjubæjarklaustri í upphafi síðasta áratugar 20. aldarinnar og lék þá mestmegnis á dansleikjum í heimabyggð.
Sveitin hafði áður gengið undir nöfnunum Hope og Volvo og gengið í gegnum einhverjar mannabreytingar en meðlimir undir Væringjanafninu voru þeir Hjörtur Freyr Vigfússon, Jón Geir Birgisson, Frosti Jónsson og Valdimar Steinar Einarsson, engar upplýsingar finnast um hljóðfæraskipan.
Væringjarnir störfuðu 1990 og 91 en lognaðist síðan útaf, sveitin kom síðan saman aftur snemma árs 2009 og lék þá á þorrablóti – ekki liggur fyrir hvort hún starfaði eitthvað meira í það skiptið.