Skagasveitin Universal monsters starfaði í kringum síðustu aldamót, ekki er ljóst hvenær hún tók til starfa en hugsanlega var það fyrir 2000.
Árið 2002 var sveitin meðal keppenda í árlegri tónlistarkeppni Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi en engar sögur fara af afrekum hennar þar aðrar en Axel Freyr Gíslason bassaleikari sveitarinnar var kjörinn sá besti í keppninni.
Glatkistan óskar eftir nöfnum og hljóðfæraskipan þeirra er skipuðu Universal monsters.