Afmælisbörn 6. júní 2022

Vilhjálmur Guðjónsson

Sex afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar á þessum degi:

Bubbi Morthens (Ásbjörn Kristinsson) er sextíu og sex ára gamall í dag. Honum skaut á stjörnuhimininn með eftirminnilegum hætti 1980 þegar hann spratt fram með hljómsveitinni Utangarðsmönnum og sólóplötu um svipað leyti. Í kjölfarið fylgdu sólóplötur sem skipta um fjórum tugum auk hljómsveita sem flestar hafa notið mikilla vinsælda, þeirra á meðal eru nefndar hér Egó, MX-21, Stríð og friður, GCD, Das Kapital og Sólskuggarnir. Bubbi er klárlega einn af toppum íslenskrar tónlistarsögu.

Baldvin A.B. Aalen trommuleikari er fjörutíu og átta ára á þessum degi en hans þekktasta hljómsveit er auðvitað Sóldögg. Meðal annarra sveita sem Baldvin hefur trommað með má nefna Hollívúdd, Syni Raspútíns, Veröld og Axlabandið, sem fæstar náðu mikilli hylli. Hann hefur á síðari árum haslað sér völl sem einn af eftirsóttustu upptökumönnum landsins.

Vilhjálmur (Hreinn) Guðjónsson tónlistarmaður er sextíu og níu ára gamall. Hann spilar á flest hljóðfæri og hefur síðustu áratugina mestmegnis unnið innan hljóðvera, ýmist sem upptökumaður, útsetjari eða hljóðfæraleikari, hann starfaði á árum áður með hljómsveitum eins og Gaddavír, Check mate, Bláber, Frostmarki og Galdrakörlum en hann hefur einnig starfrækt sveit undir eigin nafni.

Veigar Margeirsson blásari og tónskáld frá Keflavík á stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Eins og aðrir tónlistarmenn hefur Veigar leikið með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina, X-moll, 16 bleikar blöðrur, Þórir og grislingarnir, Svartur pipar, Munkar, Stórsveit Reykjavíkur, Ofris, Glerbrot og Milljónamæringarnir eru meðal þessara sveita en hann hefur einnig leikið inn á fjölda platna annarra listamanna. Veigar hefur starfað í Bandaríkjunum síðustu árin og hefur kvikmyndatónlist tekið við af öðru hjá honum.

Guðfinna Dóra Ólafsdóttir kórstjórnandi, söngkona og söngkennari er áttatíu og fimm ára í dag. Hún var stofnandi og fyrsti stjórnandi Skólakórs Garðabæjar og hefur einnig stjórnað Bel Canto kórnum, Barnakór Flataskóla og fleiri kórum, þá má heyra söng hennar á fáeinum útgefnum plötum. Guðfinna Dóra hefur hlotið fálkaorðuna fyrir framlag sitt til sönglistarinnar.

Hreinn Pálsson óperusöngvari (f. 1901) átti einnig afmæli á þessum degi. Sagan segir að hann hafi verið sjómaður í Hrísey, stigið á land dag einn, farið suður til Reykjavíkur og haldið tónleika, og slegið í gegn. Hreinn var einn þeirra sem tóku þátt í fyrstu upptökunum sem fram fóru hér á landi 1930 í tengslum við alþingishátíðina sem haldin var það ár. Um þrjátíu 78 snúninga plötur komu út með söng Hreins en einnig kom út safnplata með úrvali laga hans. Hreinn lést 1978.

Vissir þú að tónlistarkonurnar og systurnar Soffía Björg og Karítas Óðinsdætur eru barnabörn Soffíu Karlsdóttur söng- og leikkonu?