Afmælisbörn 20. mars 2023

Þorbjörg Roach

Afmælisbörnin tónlistartengdu eru fjögur að þessu sinni:

Tónskáldið Finnur Torfi Stefánsson er sjötíu og sex ára gamall í dag, hann hefur samið fjölbreytilega tónlist og má þar nefna óperu, hljómsveitaverk og verk fyrir einleikshljóðfæri, kammertónlist og rokk en á árum áður var hann í fjölmörgum hljómsveitum á tímum bítla og blómabarna. Þekktustu sveitir hans eru Óðmenn og 5-pence en einnig lék hann með Persónu, Rjóma, Tónabræðrum, Tónum og Töktum.

Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir tónskáld og tónlistarkona er þrjátíu og þriggja ára gömul á þessum degi. Þorbjörg var framan af þekkt sem hljómborðsleikari í hljómsveitinni Retro Stefson en hún hefur einnig leikið með Útidúr og á harmonikku í minni hljómsveitum.

Jökull Júlíusson söngvari og gítarleikari Kaleo úr Mosfellsbænum er þrjátíu og þriggja ára einnig, flestir þekkja hljómsveit hans en hún hefur verið að gera það gott í Bandaríkjunum. Jökull hefur einnig verið í hljómsveitinni St. Peter the leader en færri vita að hann lék og söng á plötu föður síns, Júlíusar Hjörleifssonar fyrir nokkrum árum.

Gísli Rúnar Jónsson leikari (fæddur 1953) hefði jafnframt átt afmæli á þessum degi en hann lést árið 2020, hann kom víða við í tónlistinni þótt fyrst og fremst hafi hann verið skemmtikraftur. Tvær plötur gaf hann út sem kalla mætti sólóplötur en einnig komu út plötur þar sem hann var í samstarfi við Halla og Ladda, með Júlíusi Brjánssyni sem Kaffibrúsakarlarnir og með Stefáni Karli Stefánssyni. Þá eru ótaldar plötur með tónlist úr söngleikjum og leikritum.

Vissir þú að Þorsteinn Eggertsson textahöfundur með meiru söng með fjölmörgum hljómsveitum hér á árum áður?