Hljómsveitin Óp var starfrækt árið 1999 og keppti það haust í Rokkstokk hljómsveitakeppninni sem haldin var í Keflavík.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Baldur Sívertsen gítarleikari, Sigurður Breiðfjörð trommuleikari, Arnar Hreiðarsson bassaleikari og Þráinn Óskarsson hljómborðsleikari (Kimono, Hudson Wayne o.fl.), þeir tveir síðast töldu unnu til viðurkenninga sem besti bassaleikarinn og hljómborðsleikarinn í Rokkstokk keppninni.
Óp komst í úrslit Rokkstokk og átti í kjölfarið tvö lög á safnplötunni Rokkstokk 1999 sem gefin var út í tilefni keppninnar.
Sveitin virðist ekki hafa verið langlíf.














































