Syndir holdsins / Lifi ljósið

Syndir holdsins / Lifi ljósið (Lag / texti: erlent lag / Davíð Þór Jónsson) Við horfum hér hér hvert á annað hungursaugum í vetrarfrökkunum og fljótum innan um ilmvatnsprufur, sofandi’ að feigðarósi, við erum öll í feluleik, föst í okkar lygavef sem að upphefur eymdina. Eitthvað er einhvers staðar mikilfenglegt, en enginn veit hvað bíður…

Blikandi stjörnur

Blikandi stjörnur (Lag / texti: erlent lag / Davíð Þór Jónsson) Blikandi stjörnur, þið boðið mér frið. Hátt skínið á himni og hér skínum við. Blikandi stjörnur, ég býð góðan dag og ég vil eigna ykkur árla’ að morgni lítið lag. Gliri glúbb glúpí nibbi nabbi núpí la lala ló ló. Sapa sibbi sapa núpí…

Förukarl

Förukarl (Lag / texti: Þorvaldur Blöndal / Stefánsson frá Fagraskógi) Ég er friðlaus ferðalangur, fæddur út við nyrstu höf. Fátæktina og förueðlið fékk ég bæði í vöggugjöf. Ég hef farið land úr landi, læðst um fjöll og dimman skóg, sofið undir grænum greinum, grafið mig í vetrarsnjó. Að bæjardyrum bræðra minna barði ég stundum áður…

Amma raular í rökkrinu

Amma raular í rökkrinu (Lag / texti: Ingunn Bjarnadóttir / Jóhannes úr Kötlum) Amma gamla er syfjuð og amma gamla er þreytt. Ramba-ramba, þamba-þamba og ró-ró-ró! Hún er orðin aumingi sem þolir ekki neitt. Bíum-bíum-bamba og ró-ró-ró. Dautt er undir katlinum og kusa orðin geld. Ramba-ramba, þamba-þamba og ró-ró-ró! Hér hér vantar mjólksopa og hér…

Herra minn trúr

Herra minn trúr (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Herra minn trúr, mig skortir orð til að segja ykkur vinir frá gleðinni hjá mér í gær. Mig langaði á rall, svo ég fór á ball, og gómaði stúlku sem ég fékk að fylgja heim. Herra minn trúr, hún bauð mér heim til sín, og þar leið…

Viltu dansa?

Viltu dansa? (Lag og texti: Magnús Eiríksson) Vertu ekki smeyk ég býð þér upp í sjeik. Hvernig geturðu neitað mér, er í dansinn býð ég þér? Hvernig geturðu setið kyrr, hvernig geturðu setið kyrr? Hvernig geturðu setið kyrr, hvernig geturðu setið kyrr? Úti á gólfi er allt liðið, allir dansa nema við. Komdu líka með…

Dimmar rósir

Dimmar rósir (Lag / texti: Árni Blandon / Magnús S. Magnússon) Dimmar rósir eru minning þín, heitar nætur eru þú og ég. Bjartir dagar eru brosið þitt, örfá tár, ég græt þig ástin mín. Ef ég fæ að sjá þig aftur lífið breytir lit. Ef þú kemur til mín aftur ég mun tigna þig. Minning…

Bara þig

Bara þig (Lag / texti: Jón Ómar Erlingsson / Bergsveinn Arilíusson) Finnst eins og tíminn standi í stað, ekkert gerist. Ég beiskur reyni að finna einhver orð. Í gegnum grínið sérðu tár, þú ert farin. En eitthvað brást, ég sagði eitthvað rangt. Í svefni og vöku ég hugsa bara um þig, hvar ertu og sé…

Fallegur dagur

Fallegur dagur (Lag og texti Bubbi Morthens) Veit ekki hvað vakti mig, vill liggja um stund. Togar í mig tær birtan, lýsir upp mína lund. Þessi fallegi dagur, þessi fallegi dagur. Aaa aaa aaa aaa. Íslenskt sumar og sólin syngja þér sitt lag. Þú gengur glöð út í hitann, inn í draumbláan dag. Þessi fallegi…

Út í veður og vind

Út í veður og vind (Lag og texti: Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Ég legg metnað minn í það að míga úti og í mannskaðanum varð ég undir vegg. Í Stangarholti kúldrast ég hjá Knúti og Kristínu, sem spælir okkur egg. O, ó, út í veður og vind, o, ó – vatns- ég lita mynd,…

Nostalgía

Nostalgía (Lag / texti: SSSól / Helgi Björnsson) Ókei, ég játa það að tunglið er ostur og þú ert tilbúinn að fara í ferðalag. Ókei, hvort viltu fara afturábak eða áfram? Veistu hvað er inn og hvað út, þetta er rugl, þú fyrirgefur. Sýra, nostalgía, geng ég þér á hönd, je, je, je. Ókei, ég…

Gestir út um allt

Gestir út um allt (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson / Pétur Gunnarsson) Hvað er um að vera, hvað gengur hér á, hvers vegna er ljós í stofunni? Hvaða lykt er þetta, hver öskrar eins og ljón? Danslög af plötum leikin á grammófón. Við opnum varlega dyrnar og læðumst fram á gang, lítum inn í stofuna…

Rock’n roll öll mín bestu ár

Rock ‘n roll öll mín bestu ár (Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Eggertsson) Ég man ennþá er ég keypti fyrsta gítargarminn minn, þá fór ég með hann út í bílskúr og ég æfði mig um sinn. Allir heima þurftu’að hlusta hundrað sinnum á mín lög. Mömmu sagði ég að seinna meir ég yrði…

Ég las það í Samúel

Ég las það í Samúel (Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Eggertsson) Gamall vinur minn var frægur um sinn fyrir lög númer eitt sem höfðu dáleitt flestar píur í landinu yngri en tuttugu og sex. Uns fjölmiðlarnir reyndu að stöðva hans frægð, þeim tókst það að lokum með talsveðri slægð (en þvílíkt pex.) Hann…

Hamingjan

Hamingjan (Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Eggertsson) Þegar Guð var ungur, var enginn heimur, aðeins niðdimm nóttin og nakinn geimur. Svo bjó hann til heim úr heilmiklu og slatta af hamingju. Hann skóp fugla og fé, síðan blóm og tré, stjörnur tungl og sól, himin, ský og pól. Síðan fegurðina og kærleikann, loks…

Ég vil fara upp í sveit

Ég vil fara upp í sveit (Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson) Ég vil fara upp í sveit, þar í sumar vil ég vinna, veit ég þar er margt að finna. Ég vil reyna eitthvað nýtt því ég veit að allir elska kaupakonur. Og í jeppa oft vil skreppa, ýmislegt mun gerast þar…

Hagavagninn

Hagavagninn (Lag / texti: Jónas Jónasson / Ragnar Jóhannsson) Stúlkan mín á heima vestur í Högum, hún er í búð við Laugaveg. Miðdepill í ótal ástarsögum, enginn veit það betur en ég. Babydoll hún selur og nælonsokka og sjálf um nætur klæðist því. Í rauðu hári hefur hún hvíta lokka, hún er sæt í bikini.…

Austurstræti [2]

Austurstræti  (Lag og texti: Þórhallur Sigurðsson (Laddi)) Ég niður‘ í Austurstræti snarast létt á strigaskónum með bros á vör og tyggigúmmí í munninum. Ég labba um og horfi á liðið sem er þar í hópum, frá lassarónum upp í snobbaðar kerlingar. Austurstræti, ys og læti, fólk á hlaupum í innkaupum. Fólk að tala, fólk í…

Daga og nætur (Þjóðhátíðarlag 1992)

Daga og nætur (Þjóðhátíðarlag 1992) (Lag og texti Geir Reynisson) Skipið mig ber yfir spegilslétt haf og stefnan er tekin til þín. Gleymt hef ég ólgu og óveðragný og nú kem ég heim á ný. Í fjörunni stóð ég og fylgdist með sæ en skipið þitt færðist ei nær. Nú sé ég betri og bjartari…

Kyrrlátt kvöld

Kyrrlátt kvöld (Lag [1] – Lag [2] / texti: Þorlákur Morthens – Bubbi Morthens / Þorlákur Morthens) Það er kyrrlátt kvöld við fjörðinn, rygðað liggur bárujárn við veginn. Mávurinn, múkkinn og vargurinn hvergi finna innyflin. Meðan þung vaka fjöll yfir hafi, í þögn stendur verksmiðjan ein svo langt frá hafi. Ekkert okkar snýr aftur heim.…

Upp til fjalla

Upp til fjalla (Lag / texti: erlent lag / Jón frá Ljárskógum) Upp til fjalla söngvasveinar, seiðir hugann æskuþor. Látum himinglaða hörpustrengi hljóma dátt og kátt og lengi, syngja um sól og vor. Látum svella vorn söng um hin grænu skógargöng þar sem gleðin ríkin ein, má jafnvel lífga kaldan stein. Vorsins eilífa glóð er…

Rökkurró

Rökkurró (Lag / texti: Ísólfur Pálsson / Freysteinn Gunnarsson) Í kvöld þegar ysinn er úti og annríkið hverfur og dvín, þá komum við saman og syngjum, uns sjöstjarna á himninum skín. Því andinn á heiðríkan himin í hvíld eftir stormþungan dag, og allt sem er göfugt til gleði, það geymist í söngvum og brag. Þótt…

Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma

Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma (Lag / texti: erlent lag / Hinrik Bjarnason) Ég ætla að mála allan heiminn, elsku mamma, eins og sólskin bjart og jafnt. Þó að dimmi að með daga kalda og skamma, dagar þínir verða ljósir allir samt. Litlu blómin sem þig langaði’ til að kaupa skal ég…

Vor í Vaglaskógi

Vor í Vaglaskógi (Kvöldið er okkar) (Lag / texti: Jónas Jónasson / Kristján frá Djúpalæk) Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg. Við skulum tjalda í grænum berjamó. Leiddu mig, vinur, í lundinn frá í gær, lindin þar niðar og birkihríslan grær. Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn fagnandi…

Sjö litlar mýs

Sjö litlar mýs (Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson) Díduri dom dom, Díduri dom dom, Díduri dom dom, dom. Sjö litlar mýs, sátu í hóp er síðkvöld út í garðinn ég fór. Eruð ekki hræddar?, undrandi ég spurði en undireins þær svöruðu í kór: Allar saman nú, einn tveir þrír, nei við ætlum…

Þjóðin og ég

Þjóðin og ég (Lag / texti: Torfi Ólafsson / Aðalsteinn Kristmundsson (Steinn Steinarr)) Ég er einn á gangi og hugsanir mínar hljóðar hverfa inn í rökkvaðan skóg þess, sem liðið er. Mitt stolt er að vera sonur þessarar þjóðar. En þjóðin er ekki líkt því eins stolt af mér. Í þögulli auðmýkt og tilbeiðslu stend…

Rauði sarafaninn

Rauði sarafaninn (Lag / texti: erlent lag / Jón Pálsson) Hættu góða móðir mín, hið mjúka lín að falda. Illa spáir iðjan þín því önnur sveininn fær. Gæt að gæfu þinni, grát ei dóttir kær. Aðeins einu sinni æskan við þér hlær. Kossar kveikja funa, konur bjóðast menn. Lát svo dansinn duna því dimma tekur…

Margs er að minnast

Margs er að minnast (Lag / texti: ókunnur höfundur / Theódór Einarsson) Ég hef kannað marga krókastigu á brattri lífsins leið, enda löng og mörg að baki tímans ár. Ég hef krussað bæði og slagað, þó að gatan væri ei greið, enda gatslitin og löngu fótasár. Haddería haddera – Haddería haddera, enda gatslitinn og löngu…

Mansöngur

Mansöngur (Lag / texti: Schubert / Helgi Valtýsson) Út í næturhúmið hljóða hvísla ég til þín: niður í lundsins kyrru hvelfing kom þú, ástin mín. Hjúpar döggva, mjúka moldu mánans silfurlín. Ljóð mitt beinir veikum vængjum vina, upp til þín. Þylur milt við engi og akra undurléttur blær. Næturgalinn hörpu hreyfir, himintóna slær. Fyrir mig…

Nei smáfríð er hún ekki

Nei smáfríð er hún ekki Lag [1] – Lag [2] / texti: erlent lag – Gunnar Thoroddsen / Hannes Hafstein) Nei, smáfríð er hún ekki og engin skýjadís, en enga ég samt þekki sem ég mér heldur kýs. Þótt hún sé holdug nokkuð, er höndin ofursmá. Hún er svo íturlokkuð með æskuslétta brá. Við eldblik…

Kvöld eftir kvöld

Kvöld eftir kvöld (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Þorsteinn Eggertsson) Kvöld eftir kvöld, köldum síðkvöldum á, má stundum sjá fjörugan meyjahóp mæta peyjahóp, bæði í bæjum og sveitum. Ef betur við leitum getum við séð slík gleðihöld kvöld eftir kvöld. Öfundarorð ýmsum öldungum frá oft heyra má, því æskan er svo kát, unir sér…

Ég minnist þín [2]

Ég minnist þín (Lag / texti: Guðmundur Jóhannsson / Guðjón Halldórsson) Kyrrðin djúpa barst um blómum skreytta hlíð, bjartar vonir skóp hin ljósa sumartíð. Þangað komstu, vina mín á frjálsan fund, fögur og blíð var þar ilmiþrungin rökkurstund. Barmur þinn mér veitti ástarinnar yl, ætíð leiddir þú mig draumalands til, þangað lágu jafnan okkar leyndu…

Ég man þig

Ég man þig (Lag / texti: erlent lag / Gunnar B. Jónsson) Ég man þig nú, mey, sem ég unni, og mest varst í stjarnanna fans, einn koss af þeim kærasta munni ég kysi þá fremur en dans. Ó, komdu og kysstu mig kæra, í kyrrþey um blíðviðris stund, því þá ætti ég minningu mæra…

Ó, Siggi

Ó, Siggi (Lag / texti: erlent lag (Ó Jósep Jósep) / Ragnar Jóhannesson) Ó, Siggi, Siggi, skreppum með á skauta, nú skín á svellin mánans föla sigð. Mín freista töfrar hinna hálu brauta og hug minn lokkar tjörnin silfurskyggð. Hve ljúft er ei að líða yfir svellin leidd af þinni sterku vinarhönd, studd af þínum…

Grænkandi dalur

Grænkandi dalur (Lag / texti: erlent lag / Sveinn Bjarman) Grænkandi dalur góði, gleði mín býr hjá þér. Þar á ég það í sjóði sem þekkast flestum er. Blæs mér um vanga blærinn þinn, blessaður æskuvinurinn. Grænkandi dalur góði, gleði mín býr hjá þér. Við skulum syngja saman, syngdu mér lögin þín. Guð minn, hve…

Heill þér, vor!

Heill þér, vor! (Lag / texti: erlent lag (Nú geng ég með á gleðifund) / Stefán frá Hvítadal) Ó, vor mér reyndist vakan köld er vetrarnóttin bjó um sig. Því skammdegi og skuggavöld þau skelfa jafnan mig. Ég fagna dreymdri sólarsýn, er sveipar jörðu fannalín. Það leitaði hver löngun mín, er liðu jól, til þín.…

Hann hraustur var sem dauðinn

Hann hraustur var sem dauðinn (úr Skipið sekkur) (Lag / texti: Bjarni Þorsteinsson / Indriði Einarsson) Hann hraustur var sem dauðinn og hugrakkur sem ljón, og hverjum manni fremri að verja ættarfrón. En þó féll hann í ónáð og enga fann þess bót. Hann yfirgaf svo land sitt og borg og festarsnót. Á ókunnugum stigum…

Ég vil fá mér kærustu

Ég vil fá mér kærustu (úr Ævintýri á gönguför) (Lag / texti: erlent lag / Indriði Einarsson) Og ég vil fá mér kærustu sem allra allra fyrst en ekki verður gott að finna hana, því hún skal bera kinnar sem hrútaber á kvist og hvarmaljósin björt sem demantana. Og hún skal vera fegurst af öllum…

Harpa

Harpa (Lag / texti: erlent lag (Nú er vetur úr bæ) / Jón Thoroddsen) Ríður Harpa í tún, roðar röðull á brún, rósum  stráir um löndin og æginn. Vakna sveinar við það, glaðir hlaupa á hlað, Hörpu vilja þeir leiða í bæinn. Það er mjög fögur mær, ung og yfirlitsskær, ofur góðleg og hýrleit á…

Olympíuaría Rómar

Olympíuaría Rómar (Lag / texti: höfundur ókunnur / Theodór Einarsson) Þeir flugu upp á dögunum og svifu suður í Róm, á sallafínum skóm með silkiklút og blóm. Með ólympíueld í hjarta, óslökkvandi bál, þeir allir sungu María af lífi og sál. Og allir Rómverjarnir iðuðu af kæti, þegar Íslendingarnir kysstu þeirra land, það var dansað…

Mærin frá Mexíkó

Mærin frá Mexíkó (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Eitt sinn kom til mín yngismær með augun brún sem ljómuðu blíð og skær. Ég gerðist bráður og bað um hönd, og biddu fyrir þér, mér héldu engin bönd. Ég var ungur þá og hýr á brá, en ekki féll henni við mig…

Lóa litla á Brú

Lóa litla á Brú (Lag / texti: erlent lag (Wan‘t you wear my ring) / Jón Sigurðsson) Lóa litla á Brú, hún var laglegt fljóð, svo ung og glöð og æskurjóð, vildi fá sér vænan mann og vera alltaf svo blíð og góð við hann. Og eitt sumarkvöld ók hann Sveinn í hlað á litlum…

Gunnar póstur

Gunnar póstur (Lag / texti: erlent lag (The ballad of Davy Crocket) / Loftur Guðmundsson) Hvellt er á Bröttukleif hornið þeytt, heiðin að baki – og Sörli fetar greitt, bóndi og hjú kannast hljóm þann við, í hlaðið ríður garpur eftir stundarbið. Gunnar – Gunnar póstur, garpur á dökkum jó. Koffortahestarnir í langri lest léttara…

Sólskinsvalsinn

Sólskinsvalsinn (Lag / texti: erlent lag (Familievalsen) / Steinn Steinarr) Sólin ljómar, söngvar hljóma. Í dag berst gleðinnar orð, berast gleðinnar orð yfir gróandi storð. Ástir mætast, óskir rætast í vorsins glitfagra glans, það er gleði lífsins: söngur og dans. Ég vil dansa og dansa í kvöld, dansa’ og syngja’ í heila öld. Æskan verður…

Leiftra leiftra stjarna smá

Leiftra leiftra stjarna smá (Lag / texti: erlent lag (Twinkle twinkle little star) / ókunnur höfundur) Leiftra, leiftra stjarna smá, stari’ ég hljóður log þitt á, hátt á lofti, laus við ský, líkt og demant geimnum í. Ferðalangur þakkar þér þegar blys þitt geisla fer, villast myndi’ hann víst af leið værirðu’ ei svo björt…

Við alein, ég og þú

Við alein, ég og þú  (Lag / texti: erlent lag (Let the rest of the world go bye) / Kristín M. J. Björnsson) Við alein, ég og þú, mín elskan blíð og trú, við yfirgefum allt og leggjum upp í leit, að unaðs reit, sem einn guð veit um í kyrri friðarsveit. Við finnum græna…

Seg þú mér ævintýr

Seg þú mér ævintýr (Lag / texti: erlent lag (Tell me the tales…) / Kristín M. J. Björnsson) Seg þú mér ævintýr, sömu og fyr, allt eins og fyrr, allt eins og fyrr. Syng mig í indælan sönglaga byr, allt eins og fyrr, eins og fyrr. Síðan þú komst þá er sorgin mín frá, seg…

Tvímenning ástaraugans mér drekk

Tvímenning ástaraugans mér drekk (Lag / texti: erlent lag (Drink to me only with thine eyes) / Kristín M. J. Björnsson) Tvímenning ástaraugans mér drekk, mitt auga þér hollustu sver, leggirðu koss á bikarsins barm ég bið ekki’ um vína handa mér. Sál mína þyrstir, það veit guð, hún þráir himneska veig. Þinn ástar drykk,…

Ég ann þér vina

Ég ann þér vina (Lag / texti: erlent lag (I love you truly) / Kristín M. J. Björnsson) Ég anna þér vina, ann þér heitt. Lífið er sælu og sorg fær veitt, verður sem draumur, er veit ég þig nær, því ég ann þér vina, vinan kær. [óútgefið]

Brosin

Brosin (Lag / texti: erlent lag (Smiles) / Kristín M. J. Björnsson) Kæra, hver ég finn hví þig elskar hugur minn, að sér dregur yndislegur innri maður þinn. Kæra, ég sé að ástbros hvert er gafstu, það breytti’ í gleði beiskjugleði, bjart og óþvingað. Brosin hlý þau búa’ oss gæfu, brosin ungu vekja þrá. Kærleiksbrosin…