Hljómsveitin Plug starfaði á Reykjavíkursvæðinu að minnsta kosti árið 1999, áreiðanlega þó lengur.
Plug keppti í hljómsveitakeppninni Rokkstokk sem haldin var í Keflavík 1999 og átti lag á safnplötu sem gefin var út í kjölfarið á keppninni.
Söngvari Plug var Haukur Heiðar Hauksson sem síðan hefur verið kenndur við Diktu en upplýsingar vantar um aðra meðlimi sem og líftíma sveitarinnar.














































