
Guðmundur Óskar Guðmundsson
Afmælisbörn Glatkistunnar eru tvö á þessum degi:
Fyrstan skal nefna Jón Bjarna Pétursson gítarleikara hljómsveitarinnar Diktu en hann kemur m.a. við sögu í hinu þekkta lagi Thank you, sem ómaði um allt land 2009 og 10. Jón Bjarni er 33 ára gamall.
Einnig á bassaleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín, Guðmundur Óskar Guðmundsson afmæli en hann er 28 ára. Hann var einnig áður í hljómsveitunum Imnesium, Heiðurspiltum, Mekkamoos Tilbury og Svitabandinu svo aðeins fáeinar séu nefndar.














































