
Drengjakór Fríkirkjunnar
Drengjakór Fríkirkjusafnaðarins (Drengjakór Fríkirkjunnar) var starfræktur tvo vetur á árunum 1951-53 en undirbúningur fyrir stofnun hans hófst 1950.
Guðmunda Elíasdóttir stýrði kórnum sem kom í fyrsta skipti fram á sumardaginn fyrsta vorið 1951, og í nokkur skipti eftir það.
Andrés Indriðason var líkast til eini þjóðþekkti Íslendingurinn sem var í þessum drengjakór.














































