
Drengjakór Sjónvarpsins
Drengjakór Sjónvarpsins var stofnaður haustið 1969 af Rut L. Magnússon sem einnig stjórnaði honum en kórnum var ætlað að starfa til frambúðar. Svo fór að kórinn starfaði aðeins í um tvö ár.
Kórinn kom fram í nokkrum skemmtiþáttum á vegum Sjónvarpsins sem þá var tiltölulega nýstofnað.
Nokkrir síðar þjóðþekktir tónslistarmenn sungu með þessum kór, þeirra á meðal má nefna Bergþór Pálsson og Einar Ólafsson, oft kenndan við lagið Ég vil ganga minn veg.














































