
Ólafur Þ. Jónsson
Eitt afmælisbarn er skráð að þessu sinni í afmælisdagbók Glatkistunnar
Ólafur Þ. Jónsson óperusöngvari hefði átt afmæli í dag en hann lést árið 2012. Hann var fæddur 1936 og hefði því orðið áttræður á þessum degi. Ólafur nam söng og leik hér heima hjá Sigurði Demetz og fleiri söngkennurum áður en hann hélt til frekara söngnáms í Þýskalandi og Austurríkis árið 1958 þar sem hann starfaði alla tíð síðan. Ein plata kom út hér heima með söng Ólafs, á vegum SG-hljómplatna.