Afmælisbörn 14. mars 2016

Svavar Austmann

Svavar Austmann

Í dag eru þrjú tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar:

Bernharður St. Wilkinson (Bernard Wilkinson) stjórnandi og flautuleikari er sextíu og fimm ára. Hann er Breti sem kom hingað til lands 1975 til að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur starfað hér meira og minna síðan, leikið inn á fjöldann allan af plötum og stjórnað hljómsveitum og kórum eins og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Blásarakvintett Reykjavíkur, Lúðrasveit æskunnar og Söngsveitinni Fílharmóníu svo dæmi séu tekin. Hann hefur verið búsettur í Færeyjum undanfarið.

Svavar Austmann Traustason bassaleikari í rokksveitinni Sólstöfum er þrjátíu og sjö ára gamall á þessum degi. Svavar hefur verið bassaleikari sveitarinnar frá því í kringum aldamót og tekið þátt í þeirri velgengni sem sveitin hefur skapað sér með plötum á borð við Köld, Svartir sandar og Ótta.

Jón „bassi“ Sigurðsson átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést 2007. Jón (f. 1932) lék með flestum betri hljómsveitum bæjarins hér á árum áður eins og KK sextett, Sumargleðinni, Sinfóníuhljómsveit Íslands (allt frá stofnun), Hljómsveit Jan Morávek, Hljómsveit Björns R. Einarssonar og Sextett Jón Sigurðssonar, svo nokkrar séu hér nefndar.