Um eða fyrir síðustu aldamót var hljómsveit starfandi á Grundarfirði undir nafninu Plutonium.
Upplýsingar eru takmarkaðar um Plutonium en meðlimir hennar munu hafa verið Axel Björgvin Höskuldsson gítarleikari [?], Þorkell Máni Þorkelsson hljómborðsleikari [?], Aðalsteinn Valur Grétarsson söngvari [?] og Gústav Alex Gústavsson trommuleikari [?]. Einnig mun hafa verið söngkona í sveitinni en upplýsingar um nafn hennar vantar.
Allar frekari upplýsingar um þessa sveit væru vel þegnar.














































