
Nunnurnar
Söngtríóið Nunnurnar starfaði um miðjan áttunda áratug síðustu aldar og kom reglulega fram á skemmtistöðum bæjarins.
Nunnurnar þrjár voru Drífa Kristjánsdóttir, Janis Carol og Helga Steinsson en þær voru allar þjóðþekktar söngkonur hér á landi.
Til stóð að Svavar Gests gæfi út plötu með þeim söngkonum en úr þeim fyrirætlunum varð aldrei, hins vegar komu út tvö lög með þeim á safnplötunni Hrif 2 sem kom út fyrir jólin 1975
Nunnurnar störfuðu eitthvað fram á 1976, líklega til vors.