Bjössi Thor, Robben Ford og Anna í beinni á Rás 2

bjorn-thoroddsen-anna-thuridur-sigurdardottir-robben-fordEins og kunnugt verða tónleikar með Bjössa Thor, Robben Ford og Önnu Þuríði Sigurðardóttur í Háskólabíói annað kvöld, laugardagskvöldið 22. október.

Þeir félagar, Robben Ford og Bjössi Thor verða í beinni í Popplandi á Rás 2 nú fyrir hádegi. Við það tækifæri verður Gyllta gítarnöglin afhent, gítarverðlaun Bjössa Thor, en á síðustu árum hafa snillingar á borð við Ólaf Gauk, Jón Pál, Bjögga Gísla og Gunna Þórðar tekið á móti þessu verðlaunum.

Við minnum einnig á tónleika Bjössa og Robben Ford í Háskólabíói á laugardagskvöldið. Miðasala á þá fer fram á miði.is.