
Vilhjálmur frá Skáholti
Þá er komið að afmælisbörnum dagsins sem eru tvö talsins að þessu sinni:
Alma (Goodman) Guðmundsdóttir söngkona er þrjátíu og fjögurra ára gömul í dag. Alma er hvað kunnust fyrir framlag sitt til söngsveitarinnar Nylons (síðar The Charlies) en hún kom einnig lítillega við sögu Eurovision undankeppninnar hér heima nýlega, hún býr nú og starfar í Bandaríkjunum.
Vilhjálmur (Björgvin Guðmundsson) frá Skáholti (1907-63) hefði einnig átt þennan afmælisdag en hann var fyrst og fremst ljóðskáld og hafa mörg ljóða hans orðið þekkt í flutningi tónlistarmanna. Þar má nefna Ó borg mín borg, Jesús kristur og ég og Herbergið mitt.