Afmælisbörn 7. september 2022

Heiðar Örn Kristjánsson

Að þessu sinni eru afmælisbörnin sjö talsins:

Heiðar Örn Kristjánsson er fjörutíu og átta ára. Eins og flestir muna er hann einn af Pollapönks genginu sem fór í Eurovision keppnina 2014 en hann var líka í Botnleðju sem sigraði Músíktilraunir 1995, gáfu út plötur og herjuðu á Bretlandaseyjar um tíma undir nafninu Silt, hann var auk þess í Hafnarfjarðarmafíunni. Heiðar gaf enn fremur út plötu undir nafninu Viking giant show árið 2008.

Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín er þrjátíu og fimm ára gamall en hann hefur starfað með sveitinni frá upphafi og spilað á plötum hennar, hann gaf einnig út plötu ásamt Sveini Dúu Hjörleifssyni árið 2011. Hjörtur hefur ennfremur verið í hljómsveitunum Reimum og Svitabandinu.

Bassaleikarinn Lárus Hjaltested Ólafsson fagnar sjötíu og sjö ára afmæli sínu í dag. Lárus lék á bassa á sínum tíma með mörgum hljómsveitum (og söng jafnvel) og meðal þeirra má nefna sveitir eins og Sóló, B.J. kvintettinn, Storma, ÓM og Garðar, Glæsi og Stuðbandið.

Björn Þórarinsson hljómborðsleikari Mána er sjötíu og níu ára gamall í dag. Björn kemur upphaflega frá Selfossi en hefur starfað við tónlistarkennslu víða um land og stjórnað barnakórum, hann hefur einnig leikið með fjölda hljómsveita í gegnum tíðina s.s. Safír sextett, Kaktus, Pardus, Norðurbandalaginu, Pondus, Tónabræðrum og Caroll quintet og leikið inn á fjölmargar plötur.

Andrés Kolbeinsson óbóleikari átti afmæli á þessum degi einnig en hann fæddist árið 1919 og lést 2009, níræður að aldri. Andrés nam tónlist sína í Reykjavík og Manchester á Englandi og kom heim til að verða einn af stofnendum Sinfóníuhljómsveitar Íslands um miðja síðustu öld. Hann lék með hljómsveitinni í um þrjátíu ár og starfaði einnig við tónlistarkennslu.

Sigfús Halldórsson tónskáld og tónlistarmaður (1920-96) átti ennfremur þennan afmælisdag. Sigfús lék og söng inn á fjölda hljómplatna með eigin efni, og einnig hafa komið út nokkrar plötur með lögum hans í flutningi annarra listamanna. Meðal laga eftir Sigfús má nefna Tondeleyó, Dagný, Játning, Í grænum mó, Við eigum samleið, Lítill fugl, Vegir liggja til allra átta og Litla flugan, sem er að öllum líkindum þekktasta lag hans.

Að síðustu er hér nefnd söngkonan Astrid (Sigfrid) Jensdóttir (fædd 1943) sem var af fyrstu kynslóð kvenkyns dægurlagasöngvara hérlendis. Astrid söng með nokkrum hljómsveitum á sínum tíma og var KK-sextettinn þeirra þekktust, aðrar sveitir voru m.a. Taboo kvintett, Tónik og The Swingers. Hún lést árið 2000.

Vissir þú að Vilhjálmur Vilhjálmsson stundaði nám bæði í lögfræði og læknisfræði við Háskóla Íslands?