Afmælisbörn 20. september 2022

Jón Steinþórsson

Í dag koma fjögur afmælisbörn fyrir í gagnagrunni Glatkistunnar:

Edda Borg (Ólafsdóttir) hljómborðsleikari og söngkona frá Bolungarvík er fimmtíu og sex ára gömul á þessum degi. Edda hefur spilað með mörgum hljómsveitum s.s. Perlubandinu, Kveldúlfi, Fiction, Hljómsveit Sigríðar Beinteinsdóttur og Model, sem margir muna sjálfsagt eftir en hún kom einnig fyrir í sönglagakeppnum eins og Eurovision og Landslaginu hér áður. Edda hefur um árabil rekið Tónskóla Eddu Borg.

Sigurjón Kjartansson tónlistarmaður, handritshöfundur, skemmtikraftur, Tvíhöfði og margt fleira er fimmtíu og fjögurra ára í dag. Hann er af organistaættum, frá Ísafirði og lék þar með ýmsum pönksveitum á yngri árum og auðvitað með ýmsum sveitum einnig síðar meir, meðal hljómsveita sem Sigurjón hefur starfrækt og starfað með eru Ham, Olympia, Ónýta galleríið, AndstæðA, Tilbrigði, Jazzhljómsveit Konráðs Bé og Þras. Sigurjón var einnig einn Fóstbræðra og annar Tvíhöfðabræðra.

Jón Þorleifur Steinþórsson, yfirleitt kallaður Jón skuggi er sextíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Jón sem er kunnur hljóðupptökumaður og bassaleikari hefur leikið með fjöldanum öllum af hljómsveitum í gegnum tíðina og hljóta Langi Seli og Skuggarnir að vera þeirra þekktust, meðal annarra sveita hans má nefna Kvöldverð á nesi, Ósíri, Amon Ra, Jazzhljómsveit Konráðs Bé, Gras, Bumburnar, Rússíbana, Rósenberg kvintettinn og SKLF.

Friðrik Jónsson bóndi (fæddur 1915) hefði einnig átt afmæli á þessum degi en hann lést árið 1997.  Friðrik var kórstjórnandi, organisti og söngkennari í Suður-Þingeyjasýslu um margra ára skeið en hann var líka kunnur harmonikkuleikari og tónskáld, og var höfundur laga eins og Rósin og Við gengum tvö, sem allir þekkja.

Vissir þú að Teitur Magnússon var í reggísveitinni Ojbarasta?