Afmælisbörn 12. mars 2023

Daníel Brandur Sigurgeirsson

Á þessum degi eru fimm tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Hjördís Elín Lárusdóttir (Dísella) söngkona, Grammy-verðlaunahafi, hljómborðs- og trompetleikari er fjörutíu og sex ára gömul í dag. Hún er ein Þriggja systra, dóttir Lárusar Sveinssonar trompetleikara og hefur komið víða við sögu í tónleikahaldi og plötuútgáfu, var t.a.m. kjörin söngkona ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2018. Hún gaf út plötuna Solo noi árið 2007, söng ásamt systrum sínum á plötunni Jólaboð, hefur einnig sungið í undankeppnum Eurovision og á plötum annarra listamanna. Það eru ekki margir sem vita að Dísella var hljómborðsleikari í Landi og sonum um tíma.

Daníel Brandur Sigurgeirsson gítar- og bassaleikari og söngvari fjölda hljómsveita af ýmsu tagi á stórafmæli en hann er fimmtugur á þessum degi. Hann hefur leikið með sveitum eins og Þel, Leppalúðunum (The Lepps), Mozart var ýktur spaði, Smaladrengjunum, Operation strawberry, Rétt skrapp frá, Cannabis og Royal, svo nokkrar séu nefndar.

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir organisti og kórstjórnandi er sextíu og sex ára gömul á þessum degi. Hún hefur stjórnað kórum eins og Fríkirkjukórnum í Hafnarfirði og tengdum kórum, Kvennakór Suðurnesja, Skátakórnum í Hafnarfirði og kirkukórum Hafnarfjarðar- og Víðistaðakirkju, og jafnframt verið organisti við Fríkirkjuna. Þá hefur hún stjórnað Skólahljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

Þorkell Snævar Árnason gítarleikari fagnar í dag sjötíu og níu ára afmæli sínu en hann lék með fjölda ballhljómsveita hér á árum áður. Hér eru nefndar sveitir eins og Sóló, ÓB og Janis Carol, B.J. quintettinn, Gaukar, Ásar, JJ kvintett og Junior kvintett og sjálfsagt hafa þær verið enn fleiri á sínum tíma

Þá er hér að síðustu nefndur saxfónleikarinn Birkir Huginsson úr Vestmannaeyjum en lést árið 1997 eftir veikindi. Birkir (fæddur 1964) lék með fjölda hjlómsveita í Eyjum og eru þekktastar þeirra vafalaust Sjöund (7und), Papar og Radíus en einnig má nefna sveitir eins og Kíví, Telex, Við sem fljúgum, Lost og Prestó.

Vissir þú að fyrir margt löngu var starfandi Talkór Félags ungra jafnaðarmanna?