Afmælisbörn 16. mars 2023

Ingvar Lundberg

Glatkistan hefur fimm afmælisbörn á takteinum í dag:

Páll Óskar Hjálmtýsson á fimmtíu og þriggja ára afmæli í dag. Hann þarf vart að kynna en hann kom fyrst fram á sjónarsviðið á ævintýraplötum Gylfa Ægissonar, plötum Áhafnarinnar á Halastjörnunni og plötu með tónlistinni úr leikritinu Gúmmí Tarzan en allt þetta var þegar hann var enn rétt um og ríflega tíu ára gamall. Palli er af mikill söngfjölskyldu og hefur sungið mestmegnis sem sólóisti, hann hefur til að mynda gefið út margar sólóplötur, þá fyrstu 1993. Hann hefur þó einnig sungið með hljómsveitum eins og Milljónamæringunum og Casinó, og farið sem fulltrúi Íslands í Eurovision keppnina (1997). Palli poppar reglulega upp með stórsmelli og stórtónleika í farteskinu.

Kristjana Arngrímsdóttir söngkona frá Dalvík á sextíu og tveggja ára afmæli á þessum degi, hún hefur á ferli sínum sungið á fjölda platna annarra tónlistamanna en hefur einnig gefið út nokkrar sólóplötur sjálf á síðustu árum. Kristjana var í Tjarnarkvartettnum á sínum tíma sem gaf út plötur.

Ingvar Lundberg Jónsson hljómborðsleikari Súellen frá Norðfirði átti afmæli á þessum degi en hann lést á síðasta ári eftir veikindi. Ingvar var fæddur árið 1966 og starfaði aðallega með hljómsveitinni Súellen og lék á plötum þeirrar sveitar og fleiri listamanna en hann var einnig í sveitum eins og Smass, Náttfara, Samkór Lögreglufélagsins (SKLF), Nýjum augum og Efri deild alþingis. Hans aðal starf var hljóðvinnsla í tengslum við kvikmyndagerð.

Þá átti trompetleikarinn Jón Sigurðsson afmæli þennan dag en hann lést árið 2019. Jón (fæddur 1927) starfaði með mörgum af þekktustu hljómsveitum sjötta áratugarins, m.a. KK-sextettnum og Hljómsveit Björns R. Einarssonar, hann starfaði einnig með Sinfóníuhljómsveit Íslands í nærri því fimm áratugi og lék með (og stjórnaði einnig) fjölda lúðrasveita út um allt land á ferli sínum. Hann kenndi jafnframt tónlist í tónlistarskólum alla sína starfsævi.

Og að lokum er hér nefndur harmonikku- og hljómborðsleikarinn Gunnar Kristinn Guðmundsson (fæddur 1936) en hann hafði þá sérstöðu að vera blindur og einhentur eftir slys á barnsaldri. Gunnar, sem einnig samdi tónlist, sendi frá sér eina kassettu með frumsömdu efni en hann kom stundum fram á tónleikum þrátt fyrir fötlun sína, eitt sinn m.a.s. í Grieg tónlistarhöllinni í Bergen í Noregi. Gunnar lést árið 2013.

Vissir þú að snemma á þessari öld var hljómsveit starfandi í Kópavogi undir nafninu Taðpokarnir?