
Hera Björk Þórhallsdóttir
Fjögur afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi:
Þórir Baldursson hljómborðsleikari er sjötíu og níu ára í dag. Hann er frá Keflavík og tilheyrir þeirri kynslóð þaðan sem markaði bítlaslóðir hérlendis, hann var þó meira í þjóðlagastílnum í upphafi. Þórir bjó lengi og starfaði að tónlist sinni í Þýskalandi, Bandaríkjunum og miklu víðar með tónlistarfólki eins og Donnu Summer, Giorgio Moroder, Grace Jones o.fl. en kom heim 1990. Þórir hefur samið fjöldann allan af lögum, útsett, spilað og komið að tónlistinni á einn eða annan hátt nánast alla ævi og er afar virtur í sínu fagi.
Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona á fimmtíu og eins árs afmæli í dag. Hún er dóttir Hjördísar Geirs söngkonu þannig að hún á ekki langt að sækja hæfileikana, Hera hefur sungið Eurovision framlag Íslendinga, gefið út sólóplötur, unnið mikið með Friðriki Ómari og sungið með hljómsveitum, sönghópum og kórum allt frá unglings aldri, þar má nefna Orgil, Reykjavík 5, Sweety og 17 vélar. Hún hefur verið sérlega áberandi í jólatónlistinni, söng m.a. með Frostrósunum.
Egill Örn Rafnsson trommuleikari er fjörutíu og eins árs gamall í dag. Hann hefur setið við trommusettið nánast frá fæðingu en hann er sonur Rafns Jónssonar (Rabba) og bróðir Ragnars Sólberg. Eðlilega hefur hann því oft setið við trommurnar við plötuupptökur sem tengjast fjölskyldufyrirtækinu (R&R músík) en auk þess hefur hann starfað með hljómsveitum eins og Dimmu, Woofer, Buttercup, Ber, Bergrisunum, Sign og Noise svo nokkrar séu hér upp taldar.
Þá er tónlistarmaðurinn Valtýr Björn Thors fimmtíu og átta ára gamall á þessum degi. Fáir hafa leikið með jafnmörgum hljómsveitum og hann en þær skipta mörgum tugum, hér má nefna Eilífðarvélina, Skjaldmeyjar flotans, Legó, Skruggur, Fist, Funk harmony park og Graupuna svo aðeins fáeinar séu tíndar til.
Vissir þú að hljómsveitin Bjórbandið fór eitt sinn í fjögurra mánaða reisu um Evrópu og lék þá í ellefu löndum?