Karlakórinn Hljómur mun hafa verið starfræktur í Dalasýslu árið 1983 og jafnvel lengur.
Kórinn söng á safnplötunni Vor í Dölum sem kom út það ár en engar aðrar heimildir er að finna um hann, líklega hefur hann því verið stofnaður eingöngu fyrir þetta tiltekna verkefni.
Hljómur átti sex lög á Vor í Dölum, platan hlaut þokkalega gagnrýni í eina plötudóminum sem birtist um hana í Morgunblaðinu – tveim árum eftir að platan kom út.
Það var Kjartan Eggertsson sem stjórnaði Karlakórnum Hljómi.














































