Afmælisbörn 8. desember 2014

Rafn Jónsson

Rafn Jónsson

Í dag eru afmælisbörnin tvö:

Guðni (Þórarinn) Finnsson bassaleikari er 44 ára, Guðni hefur leikið með hljómsveitum eins og Áhöfninni á Húna, Bikarmeisturunum, Dr. Spock, Ensími, Pollapönki, Rass og mörgum fleirum.

Rafn Jónsson (Rabbi) hefði líka átt afmæli þennan dag en hann lést 2004 úr MND sjúkdómnum. Rabbi (f. 1954) hefði orðið sextugur en þekktustu sveitir sem hann lék með voru Sálin hans Jóns míns, Bítlavinafélagið, Grafík, Ýr og Haukar. Rabbi gaf einnig út nokkrar sólóplötur og plötur í félagi við aðra.