
Hermann Gunnarsson
Afmælisbörn dagsins:
Björgvin Franz Gíslason leikari er 37 ára, hann vakti fyrst athygli fyrir söng í Óla prik syrpu sem naut vinsælda en hefur síðan aðallega verið tengdur barnatónlist, t.d. Benedikt búálfi, Stundinni okkar o.þ.h.
Hermann Gunnarsson (1946-2013) hefði einnig átt afmæli á þessum degi, þessi landsfrægi skemmtikraftur kom víða við á sínum ferli og var tónlistin einn þátturinn þar. Hann gaf út plötuna Frískur og fjörugur 1984 og söng á söngævintýraplötum Gylfa Ægissonar og plötum Áhafnarinnar á Halastjörnunni svo dæmi séu nefnd. Jólalag hans með Dengsa (Ladda) er einnig löngu orðið sígilt.














































