
Sigurður H. Guðmundsson
Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni:
Sigurður Halldór Guðmundsson hinn ótrúlega fjölhæfi tónlistarmaður er 37 ára en hann er í mörgum af þekktustu sveitum íslenskrar tónlistarsögu, þar má nefna hljómsveitir eins og Hjálma, Senuþjófana, Baggalút, Memfísmafíuna, Tregasveitina og Skuggasveina en hann hefur einnig sungið og leikið á hljóðfæri á tugum ef ekki hundruðum platna síðustu árin. Sigurður er einnig útsetjari, upptökumaður og sjálfsagt eitthvað miklu meira.