Afmælisbörn 6. apríl 2015

Georg Hólm

Georg Hólm

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn í gagnabanka Glatkistunnar:

Ásgeir Tómasson tónlistarspekúlant, blaðamaður, dagskrárgerðarmaður og margt annað, er 61 árs. Hann hefur skrifað um tónlist á flestum dagblöðum landsins auk þess að hafa annast þáttagerð í útvarpi.

Georg Hólm bassaleikari Sigur rósar er 39 ára, áður en hann gerði garðinn frægan með Sigur rós hafði hann leikið með sveitum eins og Föss, Korn og Vínyl.

Þriðja afmælisbarn dagsins er Ragnar Þórhallsson söngvari og gítarleikari Of monsters and men en hann er 28 ára gamall í dag.

Ennfremur hefði Berglind Bjarnadóttir (1957-86) söngkona Lítið eitt átt þennan afmælisdag, auk þess að syngja inn á nokkrar plötur (m.a. með Lítið eitt) hafði hún söngkennaramenntun á bakinu og sá um tíma um óskalagaþátt fyrir börn í Ríkisútvarpinu.