Karlakór var starfandi í Reykjahverfi í Þingeyjasýslu á fyrri hluta síðustu aldar.
Karlakór Reykhverfinga var fámennur kór í fámennum hreppi, lengst af þó um tuttugu manns. Kórinn mun hafa verið starfræktur í um áratug en ekki liggja fyrir upplýsingar um nákvæmlega hvenær, þó er ljóst að hann starfaði á árunum 1938-44.
Það mun hafa verið Sigurjón Pétursson bóndi í Heiðarbót í Reykjahverfi sem stofnaði Karlakór Reykhverfinga og stjórnaði honum alla tíð. Fæstir söngmannanna lásu nótur og þá var kórstjórnandinn ekki undanskilinn.
Kórinn gerðist aðili að Heklu, Sambandi norðlenskra karlakóra.














































