
Friðjón Þórðarson
Í dag er aðeins eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar:
Dalamaðurinn Friðjón Þórðarson fyrrum alþingismaður og ráðherra (fæddur 1923) hefði átt afmæli á þessum degi en hann var einn söngkvartettsins Leikbræðra sem gerðu garðinn frægan hér á árum áður. Leikbræður gáfu út nokkrar plötur, þar af eina stóra með eldri upptökum en hún kom út 1977. Friðjón lést 2009.














































