Afmælisbörn 25. mars 2016

Finnur Eydal1

Finnur Eydal

Þrjú afmælisbörn koma við sögu í dag:

Garðar Olgeirsson harmonikkuleikarinn góðkunni er sjötíu og tveggja ára. Fjórar plötur hafa komið út með honum þar sem hann leikur listir sínar á nikkuna og er þekktast laga hans Meira fjör á samnefndri plötu frá 1978. Hann hefur einnig leikið á plötum í félagi við aðra harmonikkuleikara.

Bjarki Tryggva söngvari á sextíu og níu ára afmæli í dag. Bjarki er þekktastur fyrir að syngja lagið Í sól og sumaryl með hljómsveit Ingimars Eydal sem hann söng með um árabil en hann söng einnig með sveitum eins og Póló og Bjarki og Mexíkó. Bjarki hefur ennfremur gefið út sólóplötur.

Akureyringurinn og prentarinn Finnur Eydal átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést árið 1996. Finnur sem fæddist 1940 rak eigin hljómsveitir og var klarinettu- og saxófónleikur hans aukinheldur sterkt einkenni á hljómsveit bróður hans, Ingimars Eydal, þar sem hann lék í áraraðir. Hann lék einnig í hljómsveit Svavars Gests um tíma, auk Atlantic kvartettsins og lék á tugum hljómplatna. Finnur var giftur söngkonunni Helenu Eyjólfsdóttur en þau hjónin störfuðu iðulega saman í hljómsveitunum.