Ingeborg frænka

Ingeborg frænka (Lag / texti: ókunnur) viðlag Ég á gamla frænku sem heitir Ingeborg, við eftir henni hermum er hún gengur niður á torg. Og svo sveiflast fjöðrin og fjöðrin sveiflast svo og svo sveiflast fjöðrin og fjöðrin sveiflast svo. viðla Og svo sveiflast hatturinn og hatturinn sveiflast svo og svo sveiflast hatturinn og hatturinn…

Indæl andartök

Indæl andartök (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) Hann púlar stíft því hana skal ei skorta neitt en skelfing sem hún getur orðið þreytt, að vakna er hann lúinn læðist inn hvíslar; Góða nótt. Ef vissi hann hvað í hennar huga býr, ó nei. viðlag Flýttu þér heim, færðu mér blóm, það…

Haust í Þjórsárdal

Haust í Þjórsárdal  (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Steinn Steinarr [Aðalsteinn Kristmundsson] Einn sat ég, einn hjá alfara vegi, um hádegi í haustrauðri sól. Og stigháir fákar með fjúkandi manir fram hjá mér þutu án myndar og hljóðs. Og vitund mín gróf sig í myrkur og moldu, með sóttheitum unaði svita og blóðs.…

Hvít orð

Hvít orð (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Heimir Már Pétursson) Vindurinn hvíslar hvítum orðum, heggur í steininn rúnir. Yljar þel sem þegið var forðum, þegið af höndum lúnum. Nóttin hefur þúsund hendur, heitir brenna eldar. Veikar sálir í hraustum hjörtum, heitar brenna eldar. Lúrir þögull sjór á sögum, sverfir orð til stáls, ekkert…

Herra konungur

Herra konungur (Lag / Rúnar Þór Pétursson / Heimir Már Pétursson) Ég hafði alltof lengi hrópað upp í hásætið til þín, konungur, og þú bara hlegið, drukkið og velt um glösum, því ég var trúðurinn, herra konungur. Ég hrópaði svo hátt að mig verkjaði í hálsinn og ég sló svo fast í borðið að það…

Hugsun

Hugsun (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Heimir Már Pétursson) Ef hugsunin hefði vængi víða, velli breiða með frjóum ökrum, latur myndi tíminn líða, leysa úr öllum hugans hnökrum. Ef um æðarnar þeysti þrótti miklum, þor til að kafa djúpt í myrkur, úr læðingi leystist ofsafenginn lífsins heiti og kaldi styrkur. Ef augun eygðu…

Huldumenn

Huldumenn (Lag / texti: Gildran / Þórir Kristinsson) Þrír huldumenn, þeir lifa enn. Synir þessa lands villtan stíga dans. Krossfarar, sverðhafar, Krossberar. Lifa á sinni trú, aldrei hverfur hún. Fyrnist aldrei slóð, lifa þeirra ljóð. [á plötunni Gildran – Huldumenn]

Hafið, bláa hafið

Hafið bláa hafið (Lag / texti: Friðrik Bjarnason / Örn Arnarson [Magnús Stefánsson]) Hafið bláa hafið hugann dregur, hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur, bíða mín þar æskudrauma lönd. Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyrr, bruna þú nú bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum, fyrir…

Hjálpaðu mér upp

Hjálpaðu mér upp (Lag / texti: Björn Jr. Friðbjörnsson) Hjálpaðu mér upp, ég get það ekki sjálfur. Ég er orðinn leiður á að liggja hér. Gerum eitthvað gott, gerum það saman, ég skal láta fara lítið fyrir mér. viðlag Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera að drukkna. Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera…

Hreðavatnsvalsinn

Hreðavatnsvalsinn (Lag / texti: Ragnar Geirs [Knútur R. Magnússon] / Atli S. Þormar) Úti við svalan sæinn syng ég mín ástarljóð, dýrðlegum dagsins draumum í dvel ég við forna slóð. Þú varst minn æskuengill, ást mín var helguð þér. Þegar ég hugsa um horfna tíð, hugur minn reika fer. viðlag Manstu hve gaman er sátum…

Hæ, meiri söng og meira yndi

Hæ, meiri söng og meira yndi (Lag / texti: erlent lag / Tryggvi Þorsteinsson) viðlag Hæ meiri söng og meira yndi, meira táp og meira fjör. Meira störf með ljúfu lyndi, meira líf og oftar hlýlegt bros á vör. Stöndum öll und einu merki, stuðlum öll að einu verki, þá rís landsins stóri sterki, stofn…

Hin gömlu kynni

Hin gömlu kynni (Lag / texti: erlent lag / Árni Pálsson) Hin gömlu kynni gleymast ei, enn glóir vín á skál. Hin gömu kynni gleymast ei né gömlu tryggðarmál. Ó, góða, góða gamla tíð með gull í mund, nú fyllum bróðir bikarinn og blessum liðna stund. Við leiddumst fyrr um laut og hól er lóan…

Halli

Halli (Lag – texti: höfundur ókunnur) Haldið ekki að Halli komi á grúfunni á heljarstökki fram af einni þúfunni. Hann fór það bara fínt og hélt hann hefði týnt gleraugunum, höfðinu’ eða húfunni.

Höfðinginn

Höfðinginn (Lag / texti: Björgvin Halldórsson / Jónas Friðrik Guðnason) Ljúf er hún víst leiðin með fljótinu með flúðasöng og fuglaklið, sem fyllir upp í prógrammið. Straumröstin hvít stiklar á grjótinu, hérna dýfu fyrsta fær flugan sem var hnýtt í gær. viðlag Áin kveður mér ljúfa sönginn sinn, svífur von um huga þinn. Ætli bíði…

Hættu að gráta hringaná

Hættu að gráta (Lag / texti: íslenskt þjóðlag / Jónas Hallgrímsson) Hættu’ að gráta hringaná, heyrðu ræðu mína. Ég skal gefa þér gull í tá þó Grímur taki þína. Hættu’ að gráta hringaná, huggun er það meiri. Ég skal gefa þér gull í tá þó Grímur taki fleiri. Hættu’að gráta hringaná, huggun má það kalla.…

Höfuð, herðar, hné og tær

Höfuð, herðar, hné og tær (Lag / texti: erlent þjóðlag / Hermann Ragnar Stefánsson) Höfuð, herðar, hné og tær, hné og tær. Höfuð, herðar, hné og tær, hné og tær. Augu, eyru, munnur og nef. Höfuð, herðar, hné og tær, hné og tær. [m.a. á plötunni Jólaball með Dengsa og félögum – ýmsir]

Holdið og andinn

Holdið og andinn (Lag / texti: Sálin hans Jóns míns / Friðrik Sturluson) Þetta kvöld var ég aleinn á gangi í garðinum, kirkjugarðinum, vestan við læk. Ekki var sála á ferð, en ég var samt að litast um – Voru andar á sveimi um allt? Það var rökkur, en ljós úti á Ljósvallagötunni sem að…

Hvar er húfan mín?

Hvar er húfan mín? (Lag / texti: Thorbjörn Egner / Kristján frá Djúpalæk) Hvar er húfan mín? Hvar er hempan mín? Hvar er falska gamla fjögurra gata flautan mín? Hvar er úrið mitt? Hvar er þetta og hitt? Hvar er bláa skyrtan, trefillinn og beltið mitt? Ég er viss um að það var hér allt…

Hvar er draumurinn?

Hvar er draumurinn? (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Farið allt sem átti ég forðum. Fangið nakið, sálin tóm. Gamall heimur genginn úr skorðum, gráhærður orðinn af eilífum áhyggjum. Hér var allt, en svo er ei lengur. Auðir bekkir, engin hljóð. Horfinn lífins farsæli fengur. Ég fæst ekki til þess að gleyma. viðlag…

Hvað um mig og þig?

Hvað um mig og þig? (Lag / texti Magnús Eiríksson) Ég sé þau þreytt með barnavagninn baksa heim á kvöldin, þar bíða bréf með rukkunum sem birta ógreidd gjöldin. “Er lífið aðeins fallinn víxill?” oft þau spyrja sig. Þau reyna að stefna í rétta átt, en hvað um mig og þig? Á laugardögum eftir klukkan…

Hvað fékkstu í jólagjöf?

Hvað fékkstu í jólagjöf? (Lag / texti: erlent þjóðlag / Jónas Friðrik Guðnason) Eftir jólin aftur byrjar skólinn, öll á vettvang þyrpast krakkagrey. Bera saman bækur, það er gaman, skólabækur eru það þó ei. Æpa fyrir utan töf öll; hvað fékkstu í jólagjöf? Ég fékk hest, ég fékk hund, ég fékk pest, ég vil hund.…

Hún mun lýsa lengi vel

Hún mun lýsa lengi vel (Lag / texti: Jens Hansson / Stefán Hilmarsson) Ef til vill var það meint. En hvað verður nú, þegar allt er breytt? Svörin koma of seint. Menn fá ýmist allt, eða ekki neitt. Það skyggir og skammt er nú að bíða.. Ég finn hvernig fjarar hratt og stöðugt undan mér.…

100.000 volt

100.000 volt (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Ég hef haldið mig á mottunni. Ég hef þraukað í þúsund ár. Sé þig hverfa sí og æ. Sé þig birtast en aldrei fæ að koma höndum yfir þig. viðlag Þú ert það sem allir vilja eiga. Þú ert það sem allir vilja fá. Sama…

Hugurinn fer hærra

Hugurinn fer hærra (Lag / texti: erlent lag / Kristján Hreinsson) Ég bíð um vetrarnótt og vaki og veit að bráðum koma jól. Og nú er hugsun mín heit, mín trú er hrein og ég veit að ég öryggi finn og að faðmurinn þinn er mitt skjól. Hugurinn fer hærra, hjartað það berst í brjósti…

Hudson bay

Hudson Bay (Lag / texti: Magnús Eiríksson / Steinn Steinarr) Ég byggði mér hús við hafið og hafið sagði ókei. Hér er ég og ég heiti Hudson bay. Í kvöldsins hægláta húmi heyrði ég bylgjunnar sog. Þannig er þessi heimur, það er og. Og hjarta mitt fylltist af friði og farmannins dreymnu ró. Ég hugsaði…

Hringdans

Hringdans (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Jónas Friðrik Guðnason) viðlag Bergja nú má bikarnum á. Bjartir loga kyndlar. Dönsum dátt. Meyjar og menn muni það enn. Kátt kveða skal og hátt. Bjartir logarnir leiftra og glansa. Loftið er mettað af snarki og reyk. Öll í hringinn sem ætlið að dansa Enginn mun þora að…

Hrafninn

Hrafninn (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Kristján frá Djúpalæk) Fugl í húmi flýgur, flytur hann illa spá. Hann er máske að hugsa um hve hefur þú augu blá. Úti er óttans fugl. Þaggast dagsins þytur, það er að koma nótt. Fuglinn uppi í fjallinu er farinn að sofa rótt. Svartur er feigðar fugl. Mjúk…

Hótel jörð

Hótel jörð (Lag / texti: Heimir Sindrason / Tómas Guðmundsson) Tilvera okkar er undarlegt ferðalag, við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Og til eru ýmsir sem ferðalag þetta þrá en þó eru margir sem ferðalaginu kvíða. Og sumum liggur…

Hókí pókí

Hókí pókí (Lag / texti: erlent lag / Hermann Ragnar Stefánsson) Við setjum hægri höndina inn, við setjum hægri höndina út. við segjum hægri höndina inn og hristum hana svo. Við gerum hókí pókí og snúum okkur í hring. Þetta er allt og sumt. viðlag Ó hókí hókí pókí, ó hókí hókí pókí. Ó hókí…

Hæ!

Hæ! (Lag / texti: Sálin hans Jóns míns / Friðrik Sturluson) Færðu þig nær til að finna lykt, ég er fallegri‘ en á myndum. Hugsun þín er í hendi mér því ég hræri í þínum æsta huga. Lífgaðu við þína lægstu hvöt, síðan líð ég um þig alla. Horfðu á mig, þennan heimsins mann, er…

Hvít jól

Hvít jól (Lag / texti: erlent lag / Stefán Jónsson) Ég man þau jólin mild og góð er mjallhvít jörð í ljóma stóð. Stöfuð stjörnum bláum frá himni háum, í fjarska kirkjuklukknahljóm. Ég man þau jól, hinn milda frið á mínum jólakortum, bið að ævinlega eignist þið heiða daga, helgan jólafrið. [m.a. á plötunni Guðrún…

Hvert örstutt spor

Hvert örstutt spor (Lag / texti: Jón Nordal / Halldór Laxness) Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? Hve öll sú gleði er fyrr naut hugur minn, er orðin hljómlaus…

Hvert sem er

Hvert sem er (Lag / texti: erlent lag / Kristján Hreinsson) Dagurinn raular lítið lag, ljósið fer að hafinu og deyr. Nóttin færir þér nýjan dag, núna elska ég þig meir og meir. Vindurinn er frjáls og hann flýgur hjá, fýkur yfir skjólið sem hjartað á. (En) þrá mín er heit, þannig er ég því…

Hver hefur skapað

Hver hefur skapað (Lag / texti: ókunnur) Hver hefur skapað blómin björt, blómin björt, blómin björt? Hver hefur skapað blómin björt? Guð á himninum. Hver hefur skapað fuglana, fuglana, fuglana? Hver hefur skapað fuglana? Guð á himninum. Hver hefur skapað stjörnurnar, stjörnurnar, stjörnurnar? Hver hefur skapað stjörnurnar? Guð á himninum. Hver hefur skapað þig og…

Hver gerði Gerði?

Hver gerði Gerði? (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) viðlag Hver gerði Gerði grikk í sumar? Hver gerði Gerði bommsí bommsí bomm? Hví er hún svona þykk í sumar? Það er af því að hún er bommsí bommsí bomm. Sýn mér þann mann og seg mér hver er hann, sá skal fá…

Hver á sér fegra föðurland

Hver á sér fegra föðurland (Lag / texti: Emil Thoroddsen / Hulda (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind)) Hver á sér fegra föðurland með fjöll og dali og bláan sand, með norðurljósa bjarmaland og björk og lind í hlíð? Með friðsæl býli, ljós og ljóð, svo langt frá heimsins vígaslóð. Geym drottinn okkar dýra land er duna jarðarstríð.…

Heim

Heim (Lag / texti: KK (Kristján Kristjánsson)) Þá fyrstu geislar dagsins kímdu, lagði hann af stað. Karl varð ekki hvikað frá hvernig sem hún bað. Hún varð eftir heima, ástargullið sanna eina. Kvaddi hana sárum, skildu þau í beiskum tárum. Settist að í stórborginni, hafði í og á, gleymdi aldrei fyrra lífi, vel þjakaður af…

Heilræðavísur [1]

Heilræðavísur (Lag / texti: m.a. Magnús Þór Sigmundsson / Hallgrímur Pétursson) Ungum er það allra best að óttast guð sinn herra. Þeim mun viskan veitast mest og virðing aldrei þverra. Hafðu hvorki háð né spott, hugsa um ræðu mína. Elska guð og gerðu gott, geym vel æru þína. Foreldrum þínum þéna af dyggð, það má…

Hátíðarskap

Hátíðarskap (Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Eggertsson) viðlag Ég kemst í hátíðarskap þótt úti séu snjór og krap. Það hljómar hvar sem ég fer sem sérstæð lög í eyru mér. Jólin koma á ný, ég spyr ekki að því, ég komin er í hátíðarskap. Í stofunni er allt svo breytt, á réttum stað…

Hátíð í Strumpabæ

Hátíð í Strumpabæ (Lag / texti: erlent lag / Jónatan Garðarsson) viðlag Jólin, jólin í Strumpabæ, jólin, jólin með hækkandi sól. Jólin, jólin ég gjafirnar fæ, nú bjóðum við gleðileg jól. Vetrarkvöld dimm og köld, frostið er við völd. Með bros á vör, af kæti ör, hlæja létt og dátt. Við stjörnuskin sér leika börn…

Hátíð í bæ

Hátíð í bæ (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ljósadýrð loftin gyllir, lítið hús yndið fyllir og hugurinn heimleiðis leitar því æ, man ég þá er hátíð var í bæ. Ungan dreng ljósið laðar, litla snót geislum baðar. Ég man það svo lengi svo lifað ég fæ lífið þá er hátíð var…

Harðsnúna Hanna

Harðsnúna Hanna (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Þorsteinn Eggertsson) Harðsnúna Hanna hélt við hann Gvend, gekk á milli manna og var við þá kennd. Ég var bara einn af þeim sem vildu hana fá. Harðsnúna Hanna, má ég kanna hvort ég möguleika á? Harðsnúna Hanna, hún er svo sæt, ég gæti hana étið ef…

Hann Tumi fer á fætur

Hann Tumi fer á fætur (Lag / texti: Mozart / Freysteinn Gunnarsson) Hann Tumi fer á fætur við fyrsta hanagal að sitja yfir ánum lengst inni í Fagradal. Og hann lætur hugann líða svo langt um dali og fjöll því kóngur vill hann verða í voða stórri höll. Og Snati hans er hirðfífl og hrútur…

Hann elskar líka þig

Hann elskar líka þig (Lag / texti: höfundur ókunnur / Valgeir Guðjónsson) Ég þarf ekki að óttast og örvænta um minn hag, ekki er ég einsömul einn einasta (drottins) dag því herra minn á himnum við hönd sér leiðir mig, hans ást mig vefur örmum og hann elskar líka þig. ég syng honum til dýrðar,…

Haltu mér fast

Haltu mér fast (Lag / texti Magnús Eiríksson) Haltu mér fast, slepptu mér hægt. Ég gæti drepið, ég gæti vægt. En ég vil engan blús, ég vil ekki visna og deyja hægt og hægt. Mikill vil meira, meira af þér. Meira af öllu því mikill hann er. En ég vil engan blús, bara skilning og…

Hlíðin mín fríða

Hlíðin mín fríða (Lag / texti: erlent lag / Jón Thoroddsen) Hlíðin mín fríða hjalla meður græna og blágresið blíða og berjalautu væna. Á þér ástaraugu ungur réð ég festa, blómmóðir besta. Sá ég sól roða, síð um þína hjalla og birtu boða brúnum snemma fjalla. Skuggi skaust úr lautu, skreið und gráa steina, leitandi…

Hjá þér

Hjá þér (Lag / Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Þegar kviknar á deginum og í lífinu ljós, þegar myrkrið hörfar frá mér, þá er eitthvað sem hrífur mig eins og útsprungin rós, þá vil ég vera hjá þér. Þegar geng ég í sólinni mitt um hábjartan dag litafegurð blasir við mér. Þegar heimurinn heillar mig…

Hinn eini sanni

Hinn eini sanni (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Ég heyrði nýjan hljóm í dag af himnum sungið til mín lag, heitur sælu-straumur um mig allan fór. Nú les ég hvernig lífið er, það liggur beinast fyrir mér að ég stilli raddir hreint í einum kór. viðlag Ég syng hinn eina sanna tón,…

Hin fegursta rósin er fundin

Hin fegursta rósin er fundin (Lag / texti: erlent lag / Helgi Hálfdánarson) Hin fegursta rósin er fundin og fagnaðarsæl komin stundin, er frelsarinn fæddist á jörðu, hún fannst meðal þyrnanna hörðu. Upp frá því oss saurgaði syndin og svívirt var Guðs orðin myndin, var heimur að hjálpræði snauður og hver einn í ranglæti dauður.…

Himinn og jörð

Himinn og jörð (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Þorsteinn Eggertsson) Í daufu rökkri gluggatjöldin bærast hægt við gluggann þinn. Ég sé þig bregða fyrir andartak, til löngunar ég finn því ég bíð einn hér úti og mig langar til að komast inn en regnið streymir látlaust niður á stétt og niður húsvegginn við gluggann…