
G.G. Gunn
Eitt afmælisbarn kemur við sögu á þessum síðasta degi ársins:
Gísli Þór Gunnarsson trúbador (G.G. Gunn) á stórafmæli en hann er sextugur í dag, Gísli er ef til vill ekki meðal þekktustu tónlistarmanna Íslands en eftir hann liggja þó þrjár plötur. Gísli starfaði um tíma sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi en hefur lítið sinnt tónlistinni síðustu tvo áratugi.