Syndir feðranna [3] (2004)

Syndir feðranna

Hljómsveitin Syndir feðranna var líkast til sett saman fyrir eina kvöldstund, afmælishátíð hljómsveitarinnar Loga frá Vestmannaeyjum þegar hún fagnaði 40 ára afmæli sínu.

Syndir feðranna var skipuð sonum meðlima Loga og kom fram óvænt á tónleikunum, hana skipuðu þeir Arnþór Henrysson bassaleikari, Jónas Hermannsson söngvari, Ólafur Guðlaugsson gítarleikari, Davíð Helgason gítarleikari og Haraldur Bachmann trommuleikari.