
Hljómsveit Hauks Ágústssonar
Djasshljómsveit Hauks Ágústssonar starfaði um skeið á Akureyri um miðjan níunda áratug síðustu aldar en um var að ræða djasshljómsveit sem upphaflega var sett saman 1984 og var starfrækt svo með hléum líklega til haustsins 1986 en þá lék sveitin víða um norðanvert landið. Um var að ræða tímabundið verkefni á vegum MENOR (Menningarsamtaka Norðlendinga sem Haukur veitti þá forstöðu).
Sveitin var sextett og meðlimir voru auk Hauks sem var söngvari sveitarinnar, Guðjón Pálsson píanóleikari (sem þá var skólastjóri Tónlistarskólans á Hvammstanga), Gunnar Randversson bassaleikari frá Akureyri, Einar Gunnar Jónsson trommuleikari einnig frá Akureyri, Felicity Elsom-Cook saxófónleikari (kennari við Tónlistarskólann á Akureyri og Herdís Jónsdóttir fiðluleikari frá Akureyri.
Djasshljómsveit Hauks fór víða um Norðurland þetta haust (1986) og flutti tónlistardagskrá en fleiri skemmtikraftar voru í för.














































