Hljómsveitin Perlan lék á öldurhúsum borgarinnar á árunum 1990-92, sveitin mun hafa sérhæft sig í gömlu dönsunum og voru staðir eins og Danshúsið í Glæsibæ aðal vettvangur hennar.
Ekki er að finna neinar upplýsingar um meðlimi Perlunnar utan þess að Mattý Jóhanns (Matthildur Jóhannsdóttir) var söngkona sveitarinnar.
Perlan sem auglýsti á sínum tíma grimmt þjónustu sína í smáauglýsingum dagblaða bauð upp á dúett og tríó auk fullmannaðrar sveitar.
Svo virðist sem Perlan hafi hætt störfum vorið 1992.

