
Schola cantorum
Schola cantorum býður upp á fjölbreytt úrval tónleika í jólamánuðinum en þeir verða sem hér segir:
Aðventutónleikar í Hallgrímskirkju 3. des kl. 12:00 – Kom þú, kom vor Immanúel
Á fyrri hádegistónleikum sínum á aðventunni býður Schola cantorum upp á unaðsfagra kórtónlist tengda aðventu og jólum.
Hér er upplagt tækifæri til að koma í Hallgrímskirkju i hádeginu og eiga stutta hátíðlega stund í aðdraganda jóla.
Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Miðaverð kr. 2000.
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju 17. des. kl. 12:00 – Hátíð fer að höndum ein
Schola cantorum býður hér upp á síðari hádegistónleika sína á aðventunni með áherslu á fagra jólatónlist.
Upplagt tækifæri til að koma við í Hallgrímskirkju i hádeginu og eiga stutta hátíðlega stund, þegar jólin nálgast óðum.
Stjórnandi og orgelleikari Hörður Áskelsson.
Miðaverð kr. 2000.
Hátíðartónleikar í Hallgrímskirkju 28. des. kl. 17:00 Jólatónleikar Schola cantorum
Schola cantorum verður með hátíðartónleika þar sem flutt verða jólalög í hugljúfum anda. Frumflutningur á fjórum jólalögum eftir Hafliða Hallgrímsson ásamt þekktari jólalögum.
Einsöngvarar: Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, Fjölnir Ólafsson og Hildigunnur Einarsdóttir.
Organisti Björn Steinar Sólbergsson.
Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Miðaverð kr. 3.500.
Frekari upplýsingar um viðburði eru á www.scholacantorum.is og á facebooksíðu Schola cantorum, https://www.facebook.com/scholacantorumrvk0














































