Síðustu dagana hafa bæst við á fjórða tug færsla í gagnagrunn Glatkistunnar. Um er að ræða flytjendur (hljómsveitir, tónlistarfólk o.fl.) sem byrja á E og J, og eru þær færslur merktar [nýtt]. Slíkar merkingar verða sýnilegar í tvær vikur frá þeim degi sem þær birtast.
Auk þess hafa nokkrar eldri færslur í gagnagrunninum verið uppfærðar, þær auknar að efni og myndum og/eða leiðréttar eftir ábendingar lesenda. Þær færslur eru ekki merktar sérstaklega.
Einnig er minnt á að allar ábendingar, leiðréttingar, viðbótarupplýsingar og myndir í gagnagrunninn eru vel þegnar og má senda þær í gegnum Facebook-síðu Glatkistunnar eða á netfangið glatkistan@glatkistan.com. Fréttatilkynningar og viðburðaauglýsingar sendist á vidburdir@glatkistan.com














































