
Umslag fyrstu breiðskífu Ragnars Bjarnason, frá 1971.
Rétt er að vekja athygli á að upplýsingar um allar plötur stórsöngvarans Ragnars Bjarnasonar (Ragga Bjarna) eru nú komnar í gagnagrunn Glatkistunnar, eða um fimmtíu talsins.
Segja má að söngferill Ragnars spanni allar tegundur útgáfuformsins en fyrstu plötur hans komu út á 78 snúninga plötum (1954), næst komu 45 snúninga plöturnar til sögunnar, þá breiðskífurnar (LP) og geisladiskurinn (CD). Varla þarf að taka fram að lög hans má einnig nálgast á Internetinu með margs konar hætti.
Hægt er að skoða upplýsingarnar með því að fara í liðinn Efni á plötum neðst í aðal umfjölluninni um Ragnar Bjarnason, eða fara beint í upplýsingarnar hér.














































