![Kátir félagar [2] 1940](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2016/01/kc3a1tir-fc3a9lagar-3-1940.jpg?w=300&h=187)
Kátir félagar
Tvær hljómsveitir störfuðu í Neskaupstað undir nafninu Kátir félagar, sú fyrri á stríðsárunum.
Kátir félagar var fyrsta danshljómsveitin sem starfaði á Norðfirði en það var á árunum 1939-43, hugsanlega þó lengur.
Meðlimir sveitarinnar voru bræðurnir Óskar Jónsson harmonikku- og orgelleikari og Geir B. Jónsson mandólínleikari en auk þeirra var Hilmar Björnsson trommuleikari, sem lék á heimatilbúið trommusett í Kátum félögum. Síðar bættu þeir harmonikkum við hljóðfæraskipanina en þeir félagar sáu allir um sönginn.














































