Afmælisbörn 18. febrúar 2016

Arnar Eggert Thoroddsen

Arnar Eggert Thoroddsen

Glatkistan hefur að þessu sinni tvö afmælisbörn á skrá:

Halldór Haraldsson píanóleikari er sjötíu og níu ára í dag. Hann nam hér heima og í London, hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, kennt á píanó í og gegnt stöðu skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík, gegnt ábyrgðarstörfum fyrir FÍT og önnur félagssamtök hér heima og erlendis svo fáein atriði séu tíunduð, hann hefur hlotið fálkaorðuna og heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir störf sín. Halldór hefur einnig gefið út nokkrar plötur þar sem píanóleika hans er að finna.

Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarskríbent er fjörutíu og tveggja ára. Hann var í einhverjum hljómsveitum á yngri árum (t.d. Maunum) en er fyrst og fremst þekktur fyrir tónlistarumfjöllun sína í Morgunblaðinu frá 1999, dagskrárgerð á Rás 2 og hefur auk þess skrifað bækur um tónlist. Arnar stundar doktorsnám í tónlistarfræðum við Edinborgarháskóla.