Hljómsveitin Röðlar starfaði 1965-66 og var skipuð ungum hljóðfæraleikurum, líklega úr Dölunum eða nærsveitum. Sveitin spilaði nokkuð á héraðsmótum á sumrin á vestanverðu landinu og Vestfjörðum.
Halldór Fannar Ellertsson (Roof tops, Fjötrar o.fl.) var í þessari sveit en ekki liggja fyrir upplýsingar um hverjir aðrir skipuðu hana.














































