Hljómsveitin Saur var starfandi 1998 og keppti það árið í Rokkstokk hljómsveitakeppninni í Keflavík.
Meðlimir Saurs voru Haraldur Anton Skúlason söngvari, Kristján Páll Leifsson gítarleikari, Árni Ehman bassaleikari og Darri Örn Hilmarsson trommuleikari.
Lag með sveitinni kom út á safnplötunni Rokkstokk 1998. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um sveitina.














































