Blúshátíð í Reykjavík 2015 að hefjast

Blúhátíð í Rvk 2015Blúshátíð í Reykjavík hefst nú um helgina með Blúsdegi í miðborginni. Þá verður tilkynnt um val á heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur 2015 á Skólavörðustígnum, bílaklúbburinn Krúser verður með bílasýningu, auk þess sem boðið verður upp á grilluð svínarif, bacon, pylsur og uppákomur á stígnum milli klukkan 14 og 17 á laugardaginn, tónleikar verða á Borgarbókasafninu klukkan 16. Hátíðin er helguð 100 ára fæðingarafmælis Muddy Waters og Wille Dixon.

Aðalgestir hátíðarinnar eru:

  • Bob Margolin, blúsgítarleikari ársins 2005 og 2008.
  • Debbie Davis, blúsgítarleikari ársins 1997 og 2010.
  • Bob Stroger, bassaleikari ársins 2011 og 2013.
  • KK band, Björgvin Gíslason, Vintage Caravan, Blue Ice Band og fjöldi annarra tónlistarmanna.

Þrennir stórtónleikar Blúshátíðar Reykjavíkur 2015 verða á Hilton Reykjavík Nordica í dymbilvikunni, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld (skírdagskvöld). Dúndrandi stemning á Klúbbi Blúshátíðar á hótelinu eftir alla stórtónleika. Þar getur allt gerst og stundum varir stuðið langt fram eftir nóttu.

Þriðjudaginn 31. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica:

KK band – Íslendingar elska KK band sem spilar blúsinn á sinn einstaka hátt. Þeir lofa sínu allra besta á Blúshátíð 2015.
Blúsband Björgvins Gíslasonar – Gítargoðið Björgvin Gíslason fer fyrir flokki eintómra snillinga. Það má enginn missa af þessu.
Blúsaðasta bandið – Á tónleikunum kemur einnig fram Blúsaðasta band Músíktilrauna 2015.

Miðvikudaginn 1. apríl kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica:

Bob Margolin, Bob Stroger og Blue Ice band – Á 100 ára fæðingarhátíð Muddy Waters spila Bob Margolin, gítarleikari Muddy Waters, fyrir gesti Blúshátíðar. Margolin er margverðlaunaður tónlistarmaður sem hefur haft mikil áhrif á Chicaco-blúsinn síðustu áratugina. Bob Stroger er hugsanlega besti bassaleikari blússögunnar en örugglega sá smekklegasti, bæði hvað varðar klæðaburð og spilamennsku. Þessi aldna hetja sem spilað hefur með flestum þekkustu blústónlistarmönnum síðustu áratuga var tilnefndur besti blúsbassaleikari áranna 2011 og 2013. Snillingarnir í Blue Ice Band spila með Margolin og Stroger.
Dagur Sig. og hljómsveit, Uncle John jr. og fl. – koma einnig fram á tónleikunum.

Fimmtudaginn 2. apríl (skírdagur) kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica:

Debbie Davis & Blue Ice band – Debbie Davis er einhver áhrifamesta kona blústónlistarinnar undanfarna áratugi. Hún er margverðlaunaður gítarleikari sem jöfnum höndum kemur fram með eigin hljómsveit eða heimsþekktum blústónlistarmönnum. Strákarnir í Blue Ice Band spila með Debbie Davis á tónleikunum.
Vintage Caravan – Vintage Caravan gerðu allt vitlaust þegar þeir komu fram á Blúshátíð hér um árið. Síðan þá hafa þeir spilað víða um lönd og mæta nú á Blúshátíð reynslumeiri og enn betri.

Á tónleikunum kemur einnig fram úrval Íslenskra blúsmanna.

 

Kaupa miða